Höfundur: Alice Oseman

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Hjartastopp Önnur bók Alice Oseman Forlagið - JPV útgáfa Einlæg og snjöll myndasaga fyrir börn og unglinga sem hefur farið sigurför um heiminn. Eftir KOSSINN áttar Nick sig á því að hann er hrifinn af Charlie. En hann hefur líka verið skotinn í stelpum. Hvað þýðir það? Og þarf hann að segja öllum heiminum frá því hver hann er? Eða fær hann tíma til að átta sig á því sjálfur?
Hjartastopp Fyrsta bók Alice Oseman Forlagið - JPV útgáfa Æðisleg myndasaga fyrir börn og unglinga sem hefur farið sigurför um heiminn. Charlie fellur fyrir Nick, skólafélaga sínum, þrátt fyrir að hann viti að Nick hafi engan áhuga á strákum. Þeir verða góðir vinir og þurfa að horfast í augu við tilfinningar sínar. Vinsælir sjónvarpsþættir á Netflix hafa verið gerðir eftir sögunni.