Höfundur: Hanna Óladóttir

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Bakland Hanna Óladóttir Forlagið - Mál og menning Líf þriggja gjörólíkra kvenna fléttast óvænt saman þegar dætur þeirra lenda á villigötum. Þær eru bakland barna sinna en bera sjálfar bagga úr eigin uppvexti. Áhrifamikil ljóðsaga um áföll, fíkn og kerfið sem bregst þegar á reynir. Bakland er þriðja ljóðabók Hönnu Óladóttur.
Kona fer í gönguferð 799 kílómetrar – 34 dagleiðir Hanna Óladóttir Forlagið - Mál og menning Kona sem komin er í öngstræti í lífi sínu fær tilboð sem hún getur ekki hafnað: Gönguferð eftir hinum heilaga Jakobsvegi á Spáni, leið sem fólk hefur gengið öldum saman í leit að innri ró og svörum við knýjandi spurningum. Ferðin verður henni lærdómsrík og beinir huganum á óvæntar brautir. Þetta er önnur ljóðabók Hönnu Óladóttur.