Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Betri tjáning

Örugg framkoma við öll tækifæri

  • Höfundur Sirrý Arnardóttir
Forsíða bókarinnar

Langar þig til að eiga auðveldara með að spjalla við fólk í fjölmenni, sér í lagi þegar þú þekkir fáa? Viltu verða betri í að halda tækifærisræður? Finnst þér þú tala of hratt þegar spennan tekur völdin? Hvernig er best að tjá sig á fjarfundum? Betri tjáning er bók fyrir alla þá sem kljást við vandamál af þessu tagi – og marga aðra.

Sirrý Arnardóttir hefur um árabil aðstoðað fólk við að tjá sig af meira öryggi og kennt ýmsar aðferðir sem beita má í samskiptum við ólíkar aðstæður. Þá hefur hún leiðbeint fólki um góð samskipti í rafheimum – en þar er sannarlega hægt að misstíga sig.

Í þessari aðgengilegu bók opnar Sirrý þér sannkallaða verkfærakistu sem eykur þér öryggi í samskiptum og að tjá þig við hvers kyns aðstæður. Hún byggir hér að hluta til á metsölubók sinni Örugg tjáning sem kom út árið 2013 og bætir við nýjum köflum og fjölmörgum, skemmtilegum og hagnýtum ráðum og reynslusögum.