Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Blóðmjólk

  • Höfundur Ragnheiður Jónsdóttir
Forsíða bókarinnar

Í Blóðmjólk sogast lesandinn inn í vinkvennahóp sem verður fyrir miklu áfalli þegar ein þeirra deyr með hræðilegum hætti. Sjónarhornið flakkar á milli kvennanna þannig að lesandinn kynnist persónunum frá ýmsum hliðum. Hvað gerðist eiginlega? Og ef það var framinn glæpur, hver er hinn seki? Þessi skvísukrimmi fékk glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn.

Blóðmjólk er fyrsta bók verðlaunahafans Ragnheiðar Jónsdóttur. Svartfuglinn er glæpasagnaverðlaun sem Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson standa að ásamt Veröld. Hér er á ferð spennandi höfundur sem mikils má vænta af í framtíðinni!

"Með Blóðmjólk kveður sér hljóðs afar athyglisverður rithöfundur sem eykur enn á fjölbreytnina í íslenskri glæpasagnaflóru með sannkölluðum skvísukrimma."

Úr umsögn dómnefndar um Svartfuglinn