Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Eldur

  • Höfundur Björk Jakobsdóttir
  • Myndir Freydís Kristjánsdóttir
Forsíða bókarinnar

Þegar eldgos hefst í jöklinum fer í gang örvæntingarfull leit að Hetju og hinum hrossunum sem hafa forðað sér á hlaupum – en hvert hafa þau farið? Eldur fjallar um vinkonurnar Hetju og Björgu sem mega ekki hvor af annarri sjá. Æsispennandi og skemmtileg bók, sjálfstætt framhald af Hetju sem fékk afar góðar viðtökur.