Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Sigga Vigga og tilveran

Heildarsafn

  • Höfundur Gísli J. Ástþórsson
  • Myndhöfundur Gísli J. Ástþórsson
Forsíða bókarinnar

Margir þekkja teiknimyndasögurnar um Siggu Viggu, fyrstu íslensku myndasöguhetjuna. Fyrsta bókin um Siggu Viggu og félaga hjá Þorski há/eff kom út árið 1978, en í tilefni af því að hundrað ár eru liðin frá fæðingu höfundarins er komin út vegleg endurútgáfa á öllum fimm bókunum í myndskreyttri öskju með formála eftir Úlfhildi Dagsdóttur.

Siggu Viggu má rekja til teikningar sem birtist í Alþýðublaðinu árið 1959, í miðju þorskastríði, af stelpu í stígvélum að hrekkja breskan aðmírál. Myndin vakti athygli út fyrir landsteinana og birtist á síðum erlendra dagblaða. Stelpan var að vísu gjörólík þeirri Siggu Viggu sem síðar varð, en ekki leið á löngu þar til hún var komin með nokkurn veginn það útlit sem við þekkjum í dag, með skýluklút, í vinnugalla og bússum.

Í heildarsafninu Sigga Vigga og tilveran eru fimm myndasögubækur sem komu út á árunum 1978–80 með úrvali myndasagna um Siggu Viggu, bestu vinkonu hennar Blíðu og forstjórann Gvend. Sögurnar tilheyra fyrstu kynslóð íslenskra myndasagna og draga upp beitta og broslega mynd af íslenskum veruleika, útgerð og fiskvinnslu.

Gísli J. Ástþórsson (1923–2012) blaðamaður, ritstjóri, rithöfundur og teiknari fæddist í Reykjavík og ólst upp þar og í Vestmannaeyjum. Hann nam blaðamennsku í Bandaríkjunum og sló nýjan tón hér á landi með óháðri blaðamennsku og nýjungum í uppsetningu efnis. Eftir Gísla liggja skáldsögur, smásögur, leikrit og fjöldi ádeiluteikninga.

Sigga Vigga og tilveran — Heildarsafn:

— Sigga Vigga og tilveran

— Fjörutíu og sjö snúðar

— Sigga Vigga og þingmaðurinn

— Sigga Vigga í steininum

— Stattu klár Sigga Vigga

Bókunum fylgir ítarefni um höfundinn og formáli eftir Úlfhildi Dagsdóttur, bókmenntafræðing. Gefið út í takmörkuðu, tölusettu upplagi. Heildarsafnið er fáanlegt í öllum helstu bókabúðum, og beint frá útgefanda, info(hjá)pssa-service.com.