Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Tryggvi Magnússon listmálari

Allt meðan mynd fylgir máli.

  • Höfundur Andrés Úlfur Helguson
Forsíða bókarinnar

Í bókinni er fjallað um litríka ævi Tryggva Magnússonar (1900-1960) en hann teiknaði skjaldarmerki Íslands og var fyrsti atvinnuteiknarinn og brautryðjandi í auglýsingateiknun á Íslandi. Bókin er ríkulega myndskreytt og fjölbreytt yfirlit fæst yfir verk þessa áhugaverða listamanns

Ævi hans fléttast saman við marga helstu atburði Íslandssögunnar á fyrri hluta 20. aldar enda kom Tryggvi víða við menningarsöguna og var sannkallaður þúsundþjalasmiður.

Tryggvi naut mikillar hylli meðal þjóðarinnar meðan han lifði. Með þessari bók endurnýjast þau kynni og fjölbreytt yfirlit fæst yfir verk þessa áhugaverða listamanns.