Af hverju báðu þau ekki Evans?

Forsíða bókarinnar

Var það slys að ókunnugur maður féll fram af klettabrún og dó? Eða bjó eitthvað ískyggilegt að baki?

Grunsemdir vakna í huga glaðværa vinaparsins, Bobbys og Francis, sérstaklega í ljósi þess hvað maðurinn sagði í andaslitrunum:

„Af hverju báðu þau ekki Evans?“

Hver var Evans? Hvað átti maðurinn eiginlega við?

Og hvað var hann að gera á þessum slóðum?

Þau ákveða að reyna að svara þessum spurningum. En þau verða þess fljótt áskynja að það er hættulegt að spyrja í tengslum við þetta dauðsfall.

Brátt eru þau bæði í bráðri lífshættu ...

„Saga sem skemmtir og ertir en reynir aldrei á þolrif lesandans eða skynsemi.“ – Times Literary Supplement

„Maður fær aldrei nóg af snilldarlegri og banvænni spennu Christies.“ – Entertainment Weeklys

„Agatha Christie er ódauðleg.“ – Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljunni