Lokakaflinn um systurnar sjö Atlas saga Pa Salt

Forsíða bókarinnar

Síðasta bókin í einum vinsælasta bókaflokki heims. Sögð er saga dularfulla auðkýfingsins Pa Salt og öllum spurningum um systurnar sjö svarað. Af hverju hann ættleiddi einmitt þessar stúlkur og hverjar aðstæður þeirra voru þegar hann fann þær. Hvers vegna hægt var að rekja slóð týndu systurinnar til Írlands.

Hér er sögð saga dularfulla auðkýfingsins sem bjó í ævintýrahöll Atlantis með kjördætrum sínum sex á afskekktum tanga í Genfarvatni í Sviss. Sagt er frá æsku hans og uppvexti og lífi hans öllu. Sambandi hans við æskuvininn, Kreeg Ezsu, sem hann kallaði bróður sinn en varð höfuðóvinur hans.

Öllum spurningum sem vaknað hafa í fyrri bókunum um systurnar sjö er svarað. Af hverju hann ættleiddi einmitt þessar stúlkur og hverjar aðstæður þeirra voru þegar hann fann þær. Hvers vegna hægt var að rekja slóð týndu systurinnar til Írlands. Hitti hún systur sínar einhvern tímann?

Ma (Marina) og Claudia, af hverju rak þær til Atlantis? Hvert var samband Georgs Hoffman við Pa Salt, sem raunverulega hét Atlas? – Svar við öllu þessu fæst í þessari bók.

Lucinda Riley hafði ekki lokið skrifum bókarinnar þegar hún lést úr krabbameini. Sonur hennar, Harry Whittaker, hafði lofað móður sinni að ljúka bókinni tækist henni það ekki. Hann stóð við það og skrifar einnig formála.