Breiðþotur

Forsíða bókarinnar

Gagnaleki skekur heimsbyggðina. Þeir sem lýsa yfir ábyrgð krefjast róttækra aðgerða í loftlagsmálum. Áhrifa lekans gætir hjá krökkunum í Þorpinu. Verið er að undirbúa Þorpið undir næsta gagnaleka, þann sem mun afhjúpa öll leyndarmálin. Breiðþotur er grípandi saga um vináttu og söknuð, tæknihyggju og uppgang öfgaafla.

Gagnaleki af áður óþekktri stærðargráðu skekur heimsbyggðina. Þeir sem lýsa yfir ábyrgð krefjast róttækra aðgerða í loftlagsmálum og hóta frekari gegnumlýsingu internetsins. Áhrifa lekans gætir hjá krökkunum í Þorpinu. Umbi flytur með föður sínum aftur heim til Ítalíu, þar sem vaxandi órói setur mark sitt á allt samfélagið. Tveimur áratugum síðar snýr Umbi aftur en kannast varla við sig á Íslandi. Hann mætir mótstöðu frá Jóku og Fransisku sem undirbúa sig og Þorpið undir næsta gagnaleka; þann sem mun afhjúpa öll leyndarmálin.

„Það er of seint að eyða gögnunum. Þau eru nú þegar í okkar vörslu. Mataruppskriftir, vaktaplön, skattaundanskot, sakleysislegt daður og sambandsslit. Vopnasala, styrkir til rannsókna í hugvísindum, meðlimaskrár öfgasamtaka, kisumyndbönd og lyklar að kjarnorkusprengjum.“

Breiðþotur er grípandi og frjó saga um vináttu og söknuð; tæknihyggju og uppgang öfgaafla.

Tómas Ævar Ólafsson er frá Akranesi en býr í Reykjavík. Hann er menntaður í heimspeki og ritlist og hefur lengst af starfað við dagskrárgerð á Rás 1. Tómas hefur áður sent frá sér ljóðabókina Umframframleiðsla (2021), sem vakti verðskuldaða athygli. Breiðþotur er hans fyrsta skáldsaga.