Dauðinn einn var vitni

Forsíða bókarinnar

Hörður Grímsson á ekki sjö dagana sæla. Hann er að rannsaka ólöglegt verðsamráð stórfyrirtækja en saknar þess að rannsaka alvöru glæpi. Einn daginn heyrir hann undarlega yfirlýsingu óþekkts manns í lokuðu talstöðvarkerfi lögreglunnar. „Eftir þrjá daga mun ég hlaupa af stað. Eftir að ég hleyp af stað hafið þið þrjár klukkustundir til að stöðva mig.“

Er um hótun eða gabb að ræða?

Þegar sama yfirlýsingin hljómar í talstöðvarkerfinu daginn eftir fær Hörður leyfi til að reyna að komast til botns í þessu dularfulla máli. Hver er að tjá sig á lögreglu­rásinni og hvað vakir fyrir honum? Hörður hefur lítið sem ekkert í höndunum til að byrja með en leggur nótt við dag við rannsóknina.

Tíminn líður og dagur hinna boðuðu aðgerða rennur brátt upp. Þann dag spáir veðurstofan hamslausum vestanstormi en Hörður óttast að annað og meira en óveður sé í aðsigi.

Getur verið að hryðjuverk séu í uppsiglingu á Íslandi?

Dauðinn einn var vitni er tólfta bókin um rannsóknarlögreglumanninn sérlundaða Hörð Grímsson, sem hefur fyrir löngu skipað sér í hóp allra vinsælustu skáldsagnapersóna samtímans.

„Stefán Máni er meistari stemningar og nístandi spennu.“

Óttarr Proppé

„Ég elska Hörð Grímsson. Hann er dásamleg týpa.“

Kolbrún Bergþórsdóttir

„Þvílík list að fá mann til að þora varla að lesa meira en á sama tíma geta ekki slitið sig frá bókinni.“

Lilja Nótt Þórarinsdóttir leikkona