Fórnarlambið

Forsíða bókarinnar

Þegar Davíð fær tölvupóst frá ókunnri konu sem segist hafa upplýsingar um æsku hans setur að honum óhug og hann vill helst hunsa póstinn. En þar sem Davíð á engar minningar frá æskunni, hefur forvitnin betur og hann svarar póstinum. Í skuggunum lúra áratugagömul leyndarmál og leikendur sem vilja allt til vinna að sannleikurinn komi ekki í ljós.

Henrik Fexeus er margverðlaunaður sjáandi og einn fremsti sérfræðingur heims á sviði líkamstjáningar og samskipta. Hann hefur skrifað fjölda bóka um mannlega hegðun og sambönd fólks. Samstarf hans við Camillu Lackberg hefur vakið mikla athygli en hann hefur skrifað með henni þrjár bækur sem hafa nú þegar verið seldar til 60 landa. Sjónvarpssería eru í vinnslu eftir bókunum.