Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Friðarsafnið

  • Höfundur Lilja Magnúsdóttir
Forsíða bókarinnar

Flóttamaður á ekki marga möguleika en með heppni og hugmyndaflugi má bjarga sér um stund. Eftir að Rakel stofnar Friðarsafnið á það hug hennar og ástina fann hún með manninum sem hún hafði þráð en sambandið gengur á ýmsu. Einn dag biður flóttamaður um að fá að fela sig á safninu. Það er erfitt að neita bjargarlausum manni um aðstoð.

Rakel leyfir réttlætiskennd sinni að blómsta með því að búa til Friðarsafnið. Hún getur ekki neitað bjargarlausum manni um aðstoð en þar með verður Friðarsafnið óvænt að glæpavettvangi og samfélagsmiðlar loga. Á fáum sólarhringum kemst Rakel á snoðir um ýmislegt sem breytir sýn hennar á heiminn. Líf hennar og stúlknanna sem lentu í krumlunum á vinahópnum alræmda verður aldrei samt.

Sagan vekur upp spurningar um hvað það er í raun að vera flóttamaður. Hver þarf að flýja og hvers vegna? Er það einungis fólk frá stríðshrjáðum löndum eða getur það hent þá sem búa í friðsömu samfélagi?

Spennandi og áleitin saga sem tekur á margvíslensum birtingarmyndum ofbeldis á raunsæjan og áhrifaríkan hátt.

Lilja Magnúsdóttir skrifaði smásagnasafnið Gaddavír og gotterí sem kom út 2022 og Svikarann sem kom út 2018. Svikarinn var tilnefndur til skáldsagnaverðlauna hjá Storytel.