Georg Guðni / Berangur
Vegleg útgáfa vegna sýningarinnar Georg Guðni / Berangur. Falleg útgáfa um íslenska myndlist sem listunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara!
Vegleg útgáfa vegna sýningarinnar Georg Guðni / Berangur er komin út hjá Listasafni Íslands. Bókin inniheldur aðfaraorð Hörpu Þórsdóttur, safnstjóra, grein eftir Einar Garibaldi Eiríksson sýningarstjóra, texta eftir Jón Kalman Stefánsson og ljóð eftir Hörpu Rún Kristjánsdóttur ásamt ljósmyndum af öllum listaverkum sýningarinnar og ítarlegri ferliskrá listamannsins.
Hvert eintak er númerað og bókin gefin út í takmörkuðu upplagi.
Falleg útgáfa um íslenska myndlist sem listunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara!