Harry Potter og Fönixreglan

Forsíða bókarinnar

Stórglæsileg myndskreytt útgáfa af fimmtu bókinni í ritröðinni um Harry Potter, stútfull af töfrum úr pensli Jims Kay, handhafa Kate Greenaway-verðlaunanna og Neil Packer..

Þegar vitsugur ráðast á Harry og Dudley í sumarfríinu gerir hann sér grein fyrir því að Voldemort og fylgdarlið hans mun svífast einskis til að ná völdum og knésetja hann. Í Hogwarts er allt í uppnámi vegna yfirvofandi endurkomu Voldemorts og Harry, Hermione og Ron þurfa að taka til sinna ráða.

Þegar tvær vitsugur ráðast á Harry og Dudley í sumarfríinu, og Harry þarf að koma fyrir dómstól galdramálaráðuneytisins í kjölfarið, gerir hann sér grein fyrir því að Voldemort og fylgdarlið hans mun svífast einskis til að ná völdum og knésetja hann. En óvænt aðstoð berst frá Fönix-reglunni, leynireglu sem starfar gegn hinum myrku öflum og hefur aðsetur á æskuheimili Siriusar Black, guðföður Harrys. Í Hogwarts er allt í uppnámi vegna yfirvofandi endurkomu Þess-sem-ekki-má-nefna og þegar nýi kennarinn í vörnum gegn myrku öflunum reynist óhæfur þurfa Harry, Hermione og Ron að taka til sinna ráða. Þau fá skólafélaga sína með sér í lið, meðal annars Cho Chang, sem vekur upp nýjar tilfinningar hjá Harry.