Íslandsferð Idu Pfeiffer
Guðmundur J. Guðmundsson þýddi og ritaði inngang
Vorið 1845 steig á land í Hafnarfirði kona að nafni Ida Pfeiffer. Hún var ein á ferð, ferðabókahöfundur að viða að sér efni í bók um Norðurlönd. Hún hafði gert sér háar hugmyndir um land og þjóð og varð ekki fyrir vonbrigðum með náttúru landsins. En kynnin af innfæddum ollu henni vonbrigðum. Henni fannst þeir latir, ágjarnir og hinir mestu sóðar.
Meðal þeirra staða sem Ida heimsótti voru Reykholt, Þingvellir og Geysir, auk þess sem hún gekk á Heklu, fyrst kvenna að talið er.
Ida Pfeiffer var trúlega víðförlasta kona sinnar samtíðar. Bækur hennar voru þýddar á fjölmörg tungumál og hvarvetna metsölubækur. Lýsing hennar á Íslendingum fékk ekki góða dóma íslenskra samtímamanna en er óneitanlega merkileg heimild um upplifun evrópskrar millistéttarkonu á landi og þjóð um miðja nítjándu öld.
Guðmundur J. Guðmundsson þýddi og ritaði inngang.