Anna í Grænuhlíð Rilla á Arinhæð

VIII

Forsíða bókarinnar

Börn Önnu og Gilberts eru næstum fullorðin, fyrir utan hina fallegu og skapmiklu Rillu Blythe. Þegar sagan hefst er Rilla tæplega fimmtán ára og getur ekki hugsað um annað en að fara á sinn fyrsta dans og fá sinn fyrsta koss frá myndarlegum Kenneth Ford. En ófyrirséðar áskoranir bíða hinnar taumlausu Rillu þegar heimur hennar kemst í uppnám.

Fyrri heimstyrjöldin er skollin á. Bræður hennar fara að berjast og Rilla kemur heim með munaðarlaus nýbura í súpuskál. Hún hrífst inn í dramatíska atburði sem reyna á hugrekki hennar og breytir henni að eilífu.

Rilla á Arinhæð kom upphaflega út á frummálinu árið 1921 og er síðasta skáldsagan í þessum sagnabálki. Hún hefur skapað sér sérstöðu innan kanadísks samfélag og heimsbókmennta sem fyrsta skáldsagan sem fjallaði um fyrri heimstyrjöldina út frá sjónarhorni kvenna.