Svarta ekkjan

Sönn saga af ömmunni flissandi, Nannie Doss

Forsíða bókarinnar

Áhrifamikil og hrollvekjandi frásögn af einum óhugnanlegasta fjöldamorðingja í sögu Bandaríkjanna.

Þegar Charlie Briggs kom heim til sín einn daginn í Alabama árið 1927 voru tvær dætur hans dánar. Læknir úrskurðaði að matareitrun hefði leitt þær til dauða. Engin krufning fór fram. En Charlie grunaði konu sína, Nannie, um að hafa drepið þær.

Um miðja nótt flýði hann á brott með elstu dóttur þeirra.

Nágrönnunum fannst Ninni grátt leikin þegar svik eiginmanns hennar komu í ljós. Ninnie hafði komið þeim fyrir sjónir sem elskuleg kona, einstaklega glaðleg að eðlisfari og hún naut ríkrar samúðar.

En undir niðri hafði Ninnie allt annan mann að geyma. Á því fengu að kenna á næstu árum fjórir framtíðareiginmenn, tvær systur hennar, móðir hennar, tengdamóðir, frændi og barnabarn.

Rétt eins og í fyrri bókum skrifar Ryan Green á kraftmikinn og lifandi hátt eins og í bestu spennusögu.

„Ryan Green er ótrúlegur sagnamaður ... hann segir ekki aðeins söguna eins og hún gerðist heldur gerir lesandann nánast að þátttakanda í henni.“ – Blackbird

* * * * * „Ég get ekki beðið eftir að lesa meira eftir þennan höfund.“ – amazon.com