Synt um allt land

Útisundlaugar á Íslandi

Forsíða bókarinnar

Að sækja sundlaugar er hluti af hversdegi Íslendinga og laugarnar er að finna um allt land. Myndaðir með dróna breytast þessir sælureitir úr fábreyttum og einföldum mannvirkjum í fjölskrúðug og litrík form sem geta gefið ímyndunaraflinu lausan tauminn. Um leið gefur bókin þægilegt yfirlit yfir allar útisundlaugar á landinu í landfræðilegri röð.