Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Álfarannsóknin

Forsíða kápu bókarinnar

Undarlegir hlutir eiga sér stað í sveitinni hans afa!

Það fréttir Baldur kvöldið áður en hann fer austur með pabba sínum og afa.

Undarlegir hlutir eiga sér stað í sveitinni hans afa!

Það fréttir Baldur kvöldið áður en hann fer austur með pabba sínum og afa. Tæki brotna, kaðlar losna, vinnuvélar bila, smiður segir upp störfum … og þegar Baldur mætir á staðinn gerist fleira furðulegt:

- Það kviknar og slökknar á sjónvarpinu

- Borinn bilar

- Nýi vinurinn er hræddur (sko alveg skíthræddur og neitar að

fara inn í stofu)

Er eitthvað óhreint á sveimi í sveitinni? Og gæti það mögulega tengst álfum? Eru álfar til í alvörunni?

Baldur er ekki alveg viss en nýi vinurinn virðist sannfærður. Með talstöðvum, tommustokk, farsíma, beikoni og upplýsingum frá Bjössa besta skinni þokast rannsóknin áfram og ný vináttubönd verða til.