Alexander Daníel Hermann Dawidsson Bannað að eyðileggja
Alexander er með ADHD og það er allt í lagi – nema þegar lífið tekur upp á því að fara á hvolf. Bannað að eyðileggja er spennandi saga um Alexander og Sóleyju bekkjarsystur hans, litríku fjölskyldurnar þeirra, mömmuna sem er farin og bandbrjálaðan kennara. Áhrifamikil og skemmtileg saga eftir einn ástsælasta höfund landsins.