Bannað að vekja Grýlu

Forsíða bókarinnar

Fjör á hrekkjavöku! Jólasveinarnir hafa verið ósköp prúðir síðustu áratugina. En þegar Stekkjastaur fréttir af hrekkjavökunni rifjast upp fyrir honum hvað þeir bræður voru áður miklir hrekkjalómar. Ó, þvílíkt fjör hjá þeim ... en bæjarbúar eru ekki eins ánægðir ...

... enda kunna jólasveinarnir sér ekki hóf og eru á góðri leið með að eyðileggja allt!

Tekst að koma vitinu fyrir jólasveinana og bjarga málum? Eða munu lætin og hamagangurinn gera það sem er stranglega bannað:

Að vekja Grýlu?