Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Blóðmeri

Forsíða bókarinnar

Kjartan Ómarsson virðist ósköp venjulegur maður, vel liðinn og viðkunnanlegur. Einn sólríkan dag fer hann í sund en skilar sér aldrei heim aftur. Það kemur öllum í opna skjöldu þegar lík hans finnst í blokkaríbúð sem hann hefur haldið leyndri fyrir konu sinni og kunningjum. Það sem verra er, Kjartan Ómarsson hefur verið myrtur á hrottafenginn hátt

Rannsókn málsins fellur í hendur fyrrum knattspyrnukempunnar Rúnu og starfsfélaga hennar Hönnu, nýliðans í rannsóknarlögreglunni. Fyrr en varir standa Rúna og Hanna standa frammi fyrir óhugnanlegri röð illverka sem leiðir þær sífellt dýpra í fortíð fórnarlamba sem reynist skuggalegri en við fyrstu sýn.

Steindór Ívarsson, höfundur skáldsögunnar Sálarhlekkir, sem hrifið hefur hug og hjörtu ótal lesenda og nýtur ótrúlegra vinsælda, fetar hér nýjar slóðir og færir okkur sína fyrstu glæpasögu. Blóðmeri er æsispennandi morðgáta sem heldur lesendum föngnum frá fyrstu mínútu. Hér í frábærum lestri Ásthildar Úu Sigurðardóttur.