Churchill

Stjórnvitringurinn framsýni

Forsíða bókarinnar

Winston Churchill er eini stjórnmálaleiðtogi mannkynssögunnar sem „hefur átt sína eigin kristalkúlu,“ sagði Richard Nixon Bandaríkjaforseti. Churchill bjó nefnilega yfir einstakri gáfu til að sjá fram í tímann og spá fyrir um óorðna hluti. Að baki bjó yfirgripsmikil söguþekking hans, víðtæk reynsla og óvenjulegt hugarflug og innsæi.

Churchill spáði meðal annars fyrir um heimstyrjöldina fyrri, smíði skriðdreka, þýðingu flugvéla í stríðsrekstri, uppgang leiðtoga á borð við Adolf Hitler, þróun kjarnorkuvopna, stofnun Ísraelsríkis, átök múslima og hindúa, Evrópusamvinnuna, endalok kalda stríðsins og jafnvel eigin dauðdaga.

Í þessari merkilegu bók er saga Churchills rakin með hliðsjón af þessum og fleiri dæmum af ótrúlegri framsýni hans um helstu atburði og breytingar í hernaðar- og stjórnmálasögu tuttugustu aldar.

James C. Humes (1934–2020) var bandarískur lögfræðingur og rithöfundur. Hann var einn af ræðuskrifurum Bandaríkjaforsetanna Dwights Eisenhower, Geralds Ford, Ronalds Reagan og George Bush eldri. Hann var vinsæll fyrirlesari og skrifaði fjölda bóka, þar á meðal Churchill: Speaker of the Century (Churchill: Ræðumaður aldarinnar) sem var tilefnd til Pulitzer-verðlaunanna.

Magnús Þór Hafsteinsson (1964–) er fiskifræðingur að mennt en hefur lengst af starfað við blaðamennsku og ritstörf. Hann sat um tíma á Alþingi og rær nú til fiskjar vestur á fjörðum. Hann hefur skrifað og þýtt fjölmargar bækur. Meðal eigin verka má nefna Dauðann í Dumbshafi (2011) og Návígi á norðurslóðum (2012), en af þýðingum stórvirki Max Hastings, Vítisloga – Heim í stríði 1939–1945 (2021), Kóreustríðið 1950–1953 (2022) og Kúbudeiluna 1962 (2023).