Ég læt sem ég sofi

Forsíða bókarinnar

Einstæð móðir tveggja barna fær íbúð leigða á mjög góðum kjörum en kemst fljótlega að því að það er engin tilviljun. Húsið á sér afar sorglega sögu. Lögreglan er send heim til smákrimma og þar finnst fyrir tilviljun taska sem kann að varpa ljósi á margra ára gamalt mál – þegar ung stúlka hvarf úr garðskúr og sást aldrei aftur.

Ég læt sem ég sofi er fjórða og síðasta bókin um lögreglumennina Karó og Tý og réttarmeinafræðinginn Iðunni en serían hófst á Lok, lok og læs. Bækurnar hafa notið mikilla vinsælda og hlotið lof heima og erlendis.

★★★★★★ Nettavisen í Noregi (um Lok, lok og læs)

„Hér sýnir Yrsa enn og aftur að hún er hin íslenska drottning norrænu glæpasögunnar.“ Kulturnews.de (um Gættu þinna handa)

„Ég hafði afskaplega gaman af að lesa þessa bók ... Mér finnst þetta góð Yrsa.“ Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljan (um Frýs í æðum blóð)