Fóstur

Forsíða bókarinnar

Lítil stúlka er send í fóstur til ókunnugs fólks og veit ekki hvenær hún fer aftur heim. Þótt hún þekki ekki fólkið upplifir hún hlýju og umhyggju sem hún hefur ekki áður kynnst og smám saman blómstrar hún í þeirra umsjá. En eitthvað er ósagt á snyrtilega sveitabænum og stúlkan lærir að oft fara sorg og sæla hönd í hönd.

Fóstur er falleg og afar áhrifamikil saga sem sýnir enn fágæta hæfileika Claire Keegan til þess að ná fram tilfinningalegri dýpt í knöppu og hnitmiðuðu formi. Fóstur hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar, líkt og saga hennar Smámunir sem þessir sem hlaut frábærar viðtökur á íslensku.

„Mjög hjartnæm og falleg saga; vel sögð og skrifuð, saga sem hrífur og rígheldur,“

Einar Falur Ingólfsson, Mbl.

"Lítið meistaraverk...maður fellur í stafi, hreinlega tárast."

Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljan

"Töfrum líkust ...gleymi henni aldrei."

Ingibjörg Iða Auðunardóttir, Kiljan

„Sannkallaður gimsteinn.“ Irish Independent

„Lítið kraftaverk.“ Sunday Times