Garðskúr afa Sig
Garðskúr Afa Sig er sjálfstætt framhald prósabókarinnar Eldhús Ömmu Rún sem kom út vorið 2012 og vakti verðskuldaða athygli, en þar fjallaði höfundur um hversdagsleg samskipti sín við ömmurnar á Akureyri, gömlu bóndakonuna og verkakonuna.
Í þessar bók hafa afarnir orðið, aldni framsóknarmaðurinn og sannfærði kommúnistinn sem ganga til starfa sinna á lagernum hjá KEA og niðri á kaja, en heima fyrir ríkir svo gamla hefðin í bland við óttann gagnvart nýjungum.