Hitinn á vaxmyndasafninu
Sjö nútímakraftaverkasögur
Kraftaverk nútímans láta ekki alltaf mikið yfir sér. Stundum varpar óvænt atburðarás eða óútskýrt atvik nýju ljósi á allt sem var og er og verður, eða fólk kemur auga á samhengi sem umturnar lífi þess. Ísak Harðarson skrifar hér af djúphygli og hlýju um furður tilverunnar í snjöllum og gáskafullum smásögum um leitina sígildu að sannleikanum og hamingjunni.