Kennarinn sem kveikti í
Nýr afleysingakennari tekur við BÖ-bekknum eftir ógurlegar hremmingar síðustu mánaða.
Nýr afleysingakennari tekur við BÖ-bekknum eftir ógurlegar hremmingar síðustu mánaða. Þegar krakkarnir eru sendir í dularfullan ratleik í mannlausum skólanum læðist að þeim óþægilegur grunur. Í þetta sinn fylgjum við hinum einstaka, bráðgreinda en stundum misskilda Fannari í gegnum hraða, fyndna og hörkuspennandi atburðarás í bók sem fær hárin til að rísa.