Leikrit

Ólafs Hauks Símonarsonar

Forsíða bókarinnar

Öll helstu leikrit Ólafs Hauks birtast hér í einni bók, samtals 18 verk frá löngum ferli hans.

Öll helstu leikrit Ólafs Hauks birtast hér í einni bók, samtals 18 verk frá löngum ferli hans,

Umsagnir:

Ólafur Haukur Símonarson er eitt okkar afkastamestu og bestu leikskálda á síðustu tveimur áratugum tuttugustu aldar og vel inn í þá tuttugustu og fyrstu. Flestum verkanna í þessu safnriti hefur verið mjög vel tekið og mörg þeirra orðið með okkar best heppnuðu og vinsælustu sýningum. Frumuppfærslur þeirra allra hafa verið í atvinnuleikhúsum en mörg einnig verið sýnd hjá áhugaleikfélögum víða um land og notið mikilla vinsælda. Það er því full ástæða til að gleðjast yfir útkomu þessarar bókar.

Stefán Baldursson

Eftir yfirlestur þessarar vænu bókar get ég ekki mælt nógsamlega með henni. Verkin eru hvert öðru bitastæðari og skemmtilegri, og frábært að geta notið textans í öllum sínum margbreytileika og brilljans á prenti. Ég hvet bæði leikhúsáhugafólk og almenna bókmenntaunnendur til þess að gefa þessari merku útgáfu gaum.

Olga Guðrún Árnadóttir