Litla bókabúðin við vatnið
Þegar Zoe býðst að sjá um bókabílinn fyrir Ninu í hálöndunum og gæta barna fyrir herragarðseigandann og einstæða föðurinn Ramsay Urquart í skiptum fyrir húsnæði, grípur hún tækifærið í von um betra líf fyrir sig og son sinn. Sú ákvörðun á eftir að reynast afdrifarík fyrir fleiri en þau mæðginin.
Sjálfstætt framhald Litlu bókabúðarinnar í hálöndunum.