Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Lokasuðan

Forsíða bókarinnar

Í Lokasuðunni heldur Torgney Lindgren áfram sagnagerð sinni um heim bernskuslóðanna í Vesturbotni í Norður-Svíþjóð. Nú með aðstoð sögumanns sem hefur lifað ellina af og er kominn á aðra öld ...

Á sama tíma og berklar herja á mannfólkið taka tveir menn, þýskur flóttamaður og ungur aðkomumaður að sunnan,sér fyrir hendur að finna bestu aðferðinni við að sjóða kæfu en í Vesturbotni tók kæfusuðan á sig ýmsar myndir.

Lesandanum er eftirlátið að meta sannleiksgildi sögunnar. Er allt satt eða ekkert – eða kannski sumt?

Torgny Lindgren var einn mesti stílsnillingur sænskra nútímabókmennta, ljóðskáld, skáldsagnahöfundur og leikskáld. Hann hlaut margvíslegar viðurkenningar fyrir verk sín og var kjörinn í Sænsku akademíuna árið 1991. Bækur hans hafa verið þýddar á yfir 30 tungumál.

Lokasuðan er fimmta bók Lindgrens sem kemur út á íslensku en hinar eru Naðran á klöppinni, Fimm fingra mandlan, Randafluguhunang og Norrlands Akvavit.