Næturskuggar
Ungur maður lætur lífið í dularfullum eldsvoða á Akranesi og skilur eftir sig samfélag í sárum. Athafnamenn á Skaganum villast af þröngum vegi dyggðanna í einkalífi og starfi. Lögreglukonan Elma þarf að kljást við erfitt mál samhliða því að í ljós kemur að líf hennar mun aldrei verða sem fyrr.
"Það var hætt við að lyktin af líkinu fyndist þegar rigningunni linnti. Þess vegna hafði hann hringt og ítrekað að hann vildi færa það."
Ungur maður lætur lífið í dularfullum eldsvoða á Akranesi og skilur eftir sig samfélag í sárum. Athafnamenn á Skaganum villast af þröngum vegi dyggðanna í einkalífi og starfi. Og um nætur bregður fyrir ókennilegum skuggum í þessu friðsæla bæjarfélagi.
Lögreglukonan Elma þarf að kljást við flókið og erfitt mál samhliða því sem atburðir eiga sér stað í einkalífi hennar sem gera það að verkum að líf hennar mun aldrei verða sem fyrr.
Eva Björg Ægisdóttir sló efirminnilega í gegn með fyrstu bók sinni Marrið í stiganum en fyrir hana hlaut hún glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn árið 2018. Útgáfurétturinn á bókinni hefur verið seldur víða um heim. Hún hefur nú þegar komið út í Bretlandi og hlotið frábæra dóma.
Næturskuggar er sérlega grípandi og spennuþrungin saga – og endalokin koma verulega á óvart.