Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Pons frændi og Kötturinn Keli

Forsíða bókarinnar

Sagan af Pons frænda er tvíburasaga Betu frænku. Pons fellur í ónáð hjá ættingjum sínum og tekur það svo nærri sér að hann veikist og deyr. Tekur þá við vægðarlaus barátta um hinar dýrmætu eigur hans þar sem einskis er svifist.

Sagan af Pons frænda er tvíburasaga Betu frænku og eru báðar sögurnar skrifaðar sumarið 1847 undir lok höfundarferils Balzacs. Þær bera sameiginlegan titil, Fátækir ættingjar, en eiga fátt sameiginlegt annað en það að bæði Pons og Beta eru ógiftir einstaklingar og lítt álitleg útlits. Pons er hálærður tónlistarmaður, tónskáld og hljómsveitarstjóri og safnar dýrum og og frægum málverkum og listmunum. Náinn vinur hans er Schmucke, sem einnig er tónlistarmaður. Pons fellur í ónáð hjá ættingjum sínum og tekur það svo nærri sér að hann veikist og deyr. Tekur þá við vægðarlaus barátta um hinar dýrmætu eigur hans þar sem einskis er svifist.