Rammvillt í reikningskúnstum
Hvernig fegurð villir um fyrir eðlisfræði
Eru vísindin á villigötum? Hafa vísindamenn horfið frá hinni vísindalegu aðferð? Hafa þeir villst af leið fyrir fegurðar sakir og sent frá sér ritgerðir sem bæta litlu við núverandi þekkingu? Þýski eðlisfræðingurinn og vísindamiðlarinn Sabine Hossenfelder tekst á við slíkar grundvallarspurningar í þessari umtöluðu og umdeildu bók.
Í leit að svörum ræðir Hossenfelder við þekkta vísindamenn og Nóbelsverðlaunahafa í eldlínu fræðanna. Hossenfelder spyr meðal annars hvers vegna dýrustu vísindatilraunir sögunnar hafa skilað jafn litlum árangri og raun ber vitni. Mikið er undir, þar með talin tilgátan um safn óendanlega margra alheima sem saman eiga að mynda fjölheim.
Í þessari gagnmerku bók fá lesendur einstaka innsýn í deilur um undirstöður hinnar vísindalegu heimsmyndar samtímans. Mikið umbrotaskeið kann að vera fram undan.
„Þegar mikilvæg tilraunaráðgáta í eðlisfræði er leyst með kenni legu innsæi staðnæmist enginn og spyr hvort hugmyndin sé nógu fögur til að vera sönn heldur hvort hún sé nógu sönn til að vera fögur.“ – Lawrence Krauss
„Rammvillt í reikningskúnstum er ... uppfull af beinskeyttu og nöpru háði og spyr djarfra spurninga.“ – NATURE
„Óhamin, djúp og umhugsunarverð skrif sem ættu að koma öllu skynsömu fólki í þessum geira, sem á annað borð er fært um sjálfsskoðun, til að efast.“ – FORBES