Rauði krossinn á Íslandi - 100 ára saga

Forsíða bókarinnar

Guðjón Friðriksson sagnfræðingur rekur í þessari veglegu og ríkulega myndskreyttu bók sögu Rauða krossins í heila öld og bregður upp margrbrotinni mynd af fjöldahreyfingu sem lætur sér fátt óviðkomandi.

Rauði krossinn á Íslandi var stofnaður árið 1924. Hugsun stofnendanna var að bæta úr brýnni þörf í íslensku samfélagi fyrir betri og faglegri heilbrigðisþjónustu. Á þeirri öld sem Rauði krossinn hefur starfað á Íslandi hefur hann haft grundvallaráhrif á þróun samfélagsins og viðhorf almennings til aðstoðar við þá sem eru í neyð og vanda, hvar á jörðinni sem þeir búa. Guðjón Friðriksson sagnfræðingur rekur í þessari veglegu og ríkulega myndskreyttu bók sögu Rauða krossins í heila öld og bregður upp margrbrotinni mynd af fjöldahreyfingu sem lætur sér fátt óviðkomandi. Bókin er um leið virðingarvottur við þær þúsundir sem í áranna rás hafa ljáð samtökunum krafta sína með óeigingjörnu sjálfboðastarfi og þannig stuðlað að bættu samfélagi.