Sögur fyrir eins árs
Vögguvísur, stuttar sögur og fallegar myndir til að gleðja yngstu lesendur. Einnig eru fáanlegar bækur í sama bókaflokki fyrir tveggja, þriggja og fjögurra ára börn. Þær bækur innihalda þrjár stuttar sögur í einni bók ásamt vísum og/eða söngvum.
Það getur verið dásamlegasta stund dagsins þegar við lesum saman bók og njótum samveru, fallegra og litríkra mynda og syngjum jafnvel vögguvísur! Að lesa upphátt er eitthvað það besta sem þú getur gert fyrir ungabörn.
Bókin Sögur fyrir eins árs inniheldur fjórar hugljúfar og einfaldar sögur til að njóta með börnum, sérstaklega ritaðar svo henti fyrir eins árs. Orðum er haldið í hófi og myndir eru hafðar einfaldar, litríkar og grípandi!