Nú blakta rauðir fánar

Saga kommúnista- og sósíalistahreyfingarinnar á Íslandi 1918–1968

Forsíða bókarinnar

Af hverju var kommúnistahreyfingin á Íslandi jafn öflug og raun ber vitni? Fjallað er um upphaf hennar og þróun frá 1918–1968 og hún skoðuð í ljósi íslenskrar þjóðfélagsþróunar og alþjóðlegra hugmyndastrauma.

Sýnt er hvernig fámennum hópi kommúnista tókst að gera flokk sinn að fjöldahreyfingu jafnframt er valdabaráttu innan hennar gerð skil.

Nú blakta rauðir fánar fjallar um upphaf og þróun kommúnistahreyfingarinnar á Íslandi á tímabilinu 1918–1968.

Saga hreyfingarinnar er skoðuð í ljósi íslenskrar þjóðfélagsþróunar og alþjóðlegra hugmyndastrauma. Kannað er úr hvaða jarðvegi hreyfingin var sprottin, skoðað hverjir studdu hana og hvers vegna og sýnt hvernig fámennum hópi íslenskra kommúnista tókst að gera flokk sinn að fjöldahreyfingu, ólíkt því sem gerðist í flestum nágrannalöndum. Valdabaráttan innan Kommúnistaflokks Íslands (1930–1938) og Sameiningarflokks alþýðu – Sósíalistaflokksins (1938–1968) er skoðuð og starfsemi flokksdeilda og sósíalistafélaga víðs vegar um landið könnuð, með hliðsjón af viðvarandi togstreitu milli Reykjavíkur og landsbyggðarinnar, sem fram kom í starfi hreyfingarinnar.