Systraklukkurnar
Í fornri stafkirkju í norskum afdal hanga Systraklukkurnar sem eru sagðar hringja þegar hætta steðjar að. Þegar nýr prestur kemur í sóknina vaknar von í brjósti Astridar um betra líf. Hann reynir að koma á nýjum siðum en þegar ungur þýskur arkitekt birtist breytist líf Astridar og hún þarf að velja á milli prestsins og framtíðar í öðru landi.